Frakklandsferdin

Hædílíhó. Jæja nú er komid ad ferdasøgu. Ferdin byrjadi á rútuferd í 22 tíma sem var bara helvíti. Allt í lagi ad sitja í rútu í nokkra tíma en ad turfa ad sofa í henni líka er bara vont.

Vid "lentum" í Chamonix um 8:30 á mánudagsmorgni og allir mygladir og ógedslegir. Tad var búid ad skipta okkur nidur í herbergi og vid herbergisfélagarnir fórum upp á herbergi og tókum upp úr tøskum og løgdum okkur. Svo seinna um daginn var farid í búd sem lánadi okkur græjur fyrir næsta dag, t.e fyrir tá sem voru í hóp 3 og á leidinni í ísklifur. Tarna fengum vid hjálm, skó, gadda á skóna, belti og øxi.

Daginn eftir løgdum vid af stad upp í fjall med gamalli skrøltandi lest. Svo kom ad tvi ad vid turftum ad komast nidur á ísinn. Tad var nú ekki skemmtileg lífsreynsla tví vid turftum ad fara nidur ógedisstiga og ég var ad deyja úr hrædslu. En vid sem vorum hræddust vorum sett í band og guidinn lódsadi okkur svo nidur. Tegar á ísinn var komid fórum vid ad gera allskonar æfingar og svo loks fengum vid ad klífa ísvegg. Tad var mjøg gaman ad fara upp en ad fara nidur var ekki alveg eins skemmtilegt... Gott ad Jórunn var med mér í hóp tví hún var mjøg dugleg vid ad hvetja mann áfram. Takk Jórunn. Audvitad turftum vid svo ad fara upp ógedisstigana aftur en í tetta skiptid var tad mun skárra.

Dagur 3 fór svo í fjallgøngu. Vid tókum kláf upp í fjall sem heitir Brevent og tad er 2580 m hátt. Vid fórum upp í 2000 metra hæd og áttum ad labba afganginn. Eftir reynslu dagsins á undan tá var ferdin med kláfnum prump midad vid stigana. Djøfull var samt erfitt ad labba tarna upp, ég held ég hafi verid mód allan tímann. Eitthvad tunnu lofti ad kenna og eh slæmu formi... Jórunn sem var med mér í hóp gerdi sér lítid fyrir og hljóp upp á topp!!! Ekki nóg med tad heldur ákvádu hún og eh fleiri ad hlaupa nidur, nema hvad ad tau villtust og hlupu nidur og upp á fjallid hinumegin. Bara gedveiki. En tetta var alveg stórkostleg reynsla og útsýnid madur minn lifandi var bara flott.

Fyrri hlutinn af degi 4 var ekki alveg minn tebolli. En tad var klettaklifur. Ég prófadi allavega ad klifra pínulítid og mér leist ekkert á blikuna og vildi bara fara nidur. Held ég leggi tetta ekki fyrir mig. Eftir hádegismat tók svo vid fjallahjólreidar. Ju hvad tad var skemmtilegt. Vid fórum eh upp í fjall og hjóludum upp og nidur og í gegnum skóg og yfir eh lítinn læk og tetta var bara svo rosalega skemmtilegt ad mig langadi ad fara aftur:)

Sídasti dagurinn fór svo í riverrafting. Tókum rútu í 2 tíma í eh lítinn bæ og klæddum okkur í blautbúninga sem voru blautir vegna hópsins á undan og oj tad var vidbjódur. Madur tók sig ekkert smá vel út í blautbúningi, tví midur á ég ekki mynd af tví;( Svo skiptum vid okkur nidur í eh fjóra báta og vorum ad skvetta vatni á hvort annad og leidsøgumennirnir voru ad láta okkur klessa á stóra steina og reyna ad fá okkur til ad detta í ána. Tetta var líka rosalega skemmtilegt og hefdi ég viljad meira action...

Um kvøldid var svo farid á eh skemmtistad sem var ad fara eh mis í fólkid og fór ég snemma heim. Rútuferd heim kl 10 á laugardagsmorgun. Ferdin heim var reyndar ekki eins slæm og sú fyrri en samt vond. Ég er svo glød ad hafa farid og fengid ad upplifa og reyna alla tessa hluti. Mæli med tessu. Myndir eru inni á Jórunni, Ester og Haffalaff og Nuný.. leiter

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ohh gaman gaman. en vá hvað ég skil þig með þetta klettaklifur úff:/

Eydís Huld (IP-tala skráð) 19.9.2006 kl. 17:10

2 identicon

Þetta hljómar ekkert smá spennandi... spurning að við skellum okkur bara í þetta dæmi í útskriftarferðinni okkar Sóðabrókanna... og þú getur verið gæd! How do you like? c",)

Berglind (IP-tala skráð) 19.9.2006 kl. 22:40

3 identicon

Vá þetta hlýtur að hafa verð alveg geggjað! :)
Alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt...

Helga Björg (IP-tala skráð) 20.9.2006 kl. 09:16

4 identicon

Shit hvað þetta er geðveikt. Skoðaði líka myndirnar hjá Jórunni og þetta hefur verið alveg sjúklegt, alveg my cup of tea sko (farin að æfa mig pínu að vera bresk).

Mér líst sko vel á að fara í svona pakka í útskriftarferðinni okkar!

En þú getur sko stollt sagt frá þessari upplifun þinni (og þá sérstaklega að þú hafir lifað af 22 tíma rútuferð).

Heidur (IP-tala skráð) 21.9.2006 kl. 19:57

5 identicon

Hmmmmm, ég nota orðið "sko" greinilega of mikið. Best að kíkja í samheitaorðabók og finna eitthvað nýtt.

Heidur (IP-tala skráð) 21.9.2006 kl. 19:58

6 identicon

já dem..hvað er maður að gera með pensil alla daga..ég vil fara í svona allskonar eins og þú!

Skoðaði einmitt allar myndirnar hjá þessum stelpum sem þú bentir á :)
Bið bara að heilsa þeim og damn..hermanninum sem kom í sjónvarpinu einu sinni.
...það er bara eitthvað karlmannlegt við svona hermennsku.

Vonandi hefuru það rosa gott mín fagra.

Íris Björg Símonar (IP-tala skráð) 21.9.2006 kl. 20:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Dagur í lífi Sally Spectra

Höfundur

Sally Spectra
Sally Spectra
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 156
  • 155
  • 142
  • 120
  • 118

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 539

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband